06.01.2020 22:51

Skíðagöngunámskeið í janúar og febrúar

Skíðafélag Strandamanna heldur tvö þriggja daga námskeið í skíðagöngu í vetur, 17.-19. janúar og 21.-23. febrúar á skíðasvæðinu í Selárdal.  Á námskeiðunum verður farið yfir grundvallaratriði hefðbundinnar skíðagöngu og er námskeiðið jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.  Hér eru drög að dagskrá námskeiðanna:

 

föstudagur 17. janúar kl. 18-19.30 æfing

laugardagur 18. janúar kl. 10.30-12.30 fyrri æfing

                                          kl. 12.30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið í skíðaskálanum í Selárdal

                                          kl. 14-16 seinni æfing

                                         Hægt að fara í sund og/eða heita potta, t.d. á Drangsnesi eða Hólmavík eftir æfingarnar

                                         kl. 19 sameiginlegur kvöldmatur á Restaurant Galdri Hólmavík

sunnudagur 19. janúar kl. 10.30-12 æfing og námskeiðslok

 

föstudagur 21. febrúar kl. 18-19.30 æfing

laugardagur 22. febrúar kl. 10.30-12.30 fyrri æfing

                                            kl. 12.30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið í skíðaskálanum í Selárdal

                                            kl. 14-16 seinni æfing

                                           Hægt að fara í sund og/eða heita potta, t.d. á Drangsnesi eða Hólmavík eftir æfingarnar

                                          kl. 19 sameiginlegur kvöldmatur á Restaurant Galdri Hólmavík

sunnudagur 23. febrúar kl. 10.30-12 æfing og námskeiðslok

 

Skráningar á námskeiðið og fyrirspurnir skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com.  Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá Ragnari Bragasyni í gsm 8933592 eða á facebook.  Skráningarfrestur á fyrra námskeiðið er til 15. janúar og á hið síðara 19. febrúar.  Námskeiðsgjald fyrir þriggja daga námskeið er 15.000 kr.

Flettingar í dag: 70
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 57
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 68114
Samtals gestir: 14694
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 19:09:58