Færslur: 2019 Febrúar

17.02.2019 13:40

Úrslit Skíðafélagsmótsins komin á síðuna

Fyrsta skíðamót vetrarins á vegum Skíðafélags Strandamanna þennan veturinn var haldið í gær sunnudaginn 16. febrúar þegar Skíðafélagsmót með hefðbundinni aðferð var haldið í Selárdal.  Genginn var 5 km hringur og startað með einstaklingsstarti, aðstæður voru góðar, gott veður og færi.  Úrslitin úr mótinu eru komin inn á þessa síðu undir liðnum úrslit.  Skíðafélag Strandamanna þakkar öllum keppendum fyrir þátttökuna og starfsfólki mótsins fyrir vel unnin störf.

15.02.2019 23:17

Skíðafélagsmót

Fyrsta skíðamót vetrarins, Skíðafélagsmót með hefðbundinni aðferð verður haldið á morgun laugardag 16. febrúar kl. 13 í Selárdal. Ræst er með einstaklingsstarti með hálfrar mínútu millibili. Keppt er í eftirfarandi vegalengdum og flokkum:

8 ára og yngri 1 km

9-10 ára 2 km

11-12 ára 2,5 km

13-14 ára 3,5 km

15-16 ára 5 km

konur 17 ára og eldri 5 km

karlar 17 ára og eldri 10 km

14.02.2019 11:59

Skíðafatnaður

Verið er að taka saman pöntun á skíðafatnaði frá Trimtex fyrir félaga í Skíðafélagi Strandamanna, um er að ræða keppnisgalla, utanyfirgalla og húfur.  Aðalbjörg Óskarsdóttir tekur við pöntunum á facebook, tölvupósti allaoskars@gmail.com eða síma 8687156

  • 1
Flettingar í dag: 98
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 83
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 65150
Samtals gestir: 14037
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 15:37:21