Lög

Lög Skíðafélags Strandamanna
Samþykkt á stofnfundi 19. nóvember 1999

1. grein:  Félagið heitir Skíðafélag Strandamanna.  Heimili þess og varnarþing er Hólmavíkurhreppur.  Félagið er aðili að HSS og þar með ÍSÍ og UMFÍ.

2. grein:  Markmið félagsins eru að efla vetraríþróttir og útivist og að gefa almenningi kost á að fá tilsögn í skíðaíþróttum.  Jafnframt að stuðla að öflugu félagsstarfi yfir vetrarmánuðina og styrkja félaga til þátttöku á skíðamótum.

3. grein:  Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að hvetja til íþrótta og útiveru yfir vetrartímann og koma upp góðri aðstöðu til skíðaiðkunar og félagsstarfs.

4. grein:  Inngöngu í félagið geta allir hlotið, sem áhuga hafa á vetraríþróttum og útivist.  Inntaka nýrra félaga fer fram á aðalfundi/félagsfundi, einnig má sækja um inngöngu í félagið til stjórnar.

5. grein:  Félagsgjöld skulu ákveðin á hverjum aðalfundi.

6. grein:  Félagi verður að vera skuldlaus við úrsögn úr félaginu og skal skrifleg úrsögn sendast til stjórnar.

7. grein:  Aðalfundur skal haldinn að hausti og félagsfundur að vori.  Aðra félagsfundi og stjórnarfundi skal halda eftir þörfum.  Til aðalfundar og félagsfundar að vori skal boða með viku fyrirvara og dagskrá kynnt.

8. grein:  Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.  Á aðalfundi skal kosin stjórn 5 manna og tveir til vara.  Stjórnin skal skipta með sér verkum.  Einnig skulu kosnir 2 skoðunarmenn og 1 til vara.

9. grein:  Á vegum stjórnar skulu að jafnaði starfa þessar nefndir:
1) Mótanefnd, sem annast undirbúning og framkvæmd móta á vegum félagsins.
2) Fjáröflunarnefnd, til að afla félaginu fjár til styrktar starfseminni.
3) Barna-og unglinganefnd, sem annast barna-og unglingastarf innan félagsins.
Í hverri nefnd skulu að jafnaði vera 3 menn kosnir á aðalfundi eða tilnefndir af stjórninni.

10 grein:  Reikninga félagsins skal leggja fram á aðalfundi, eftir að kjörnir skoðunarmenn hafa farið yfir þá.  Reikningsár félagsins er almanaksárið.

11. grein:  Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi.  Til lagabreytinga þarf 2/3 hluta atkvæða fundarins.

12. grein:  Ákvæði um félagsslit: Hætti félagið störfum skulu eignir þess renna til Héraðssambands Strandamanna.

Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 67846
Samtals gestir: 14589
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 04:35:41