Uppskeruhátíð Skíðafélags Strandamanna verður haldin sunnudaginn 4. maí. Byrjað verður á firmakeppni í boðgöngu í Selárdal kl. 13 þar sem keppt verður í þriggja manna liðum sem skipt verður í þannig að þau verði sem jöfnust að getu. Gengið verður með hefðbundinni aðferð. Þeir sem ætla að vera með þurfa að skrá sig með því að senda póst á netfangið sigrak@simnet.is eða hafa samband við Ragnar í síma: 8933592, einnig er auglýst eftir fyrirtækjum sem vilja kaupa lið í boðgöngunni.
Eftir boðgönguna verður farið í sund í sundlauginni á Drangsnesi og síðan verður sjálf uppskeruhátíðin í Félagsheimilinu Baldri á Drangsnesi. Afhent verða verðlaun og viðurkenningar fyrir veturinn og grillaðar pylsur og hamborgarar. Tilkynna þarf þáttöku á uppskeruhátíðina til Aðalbjargar Óskarsdóttur í síma 8687156 eða á netfangið allaoskars@gmail.com eða á facebook.
Sparisjóðsmót í skíðagöngu verður haldið í Selárdal 21. apríl eða annan í páskum, mótið hefst kl. 11. Gengið verður með frjálsri aðferð. Í karlaflokkum verða gengnir 10 km, í kvennaflokkum 17 ára og eldri verða gengnir 5 km. Í yngri aldursflokkum verða vegalengdir svipaðar og verið hafa á öðrum mótum í vetur. Mótið er öllum opið og fer skráning fram á staðnum. Það er Sparisjóður Strandamanna sem er styrktaraðili mótsins.
Skíðamót Arion banka verður haldið í Selárdal laugardaginn 19. apríl og hefst kl. 11. Gengið verður með hefðbundinni aðferð. Í karlaflokkum 17 ára og eldri verða gengnir 15 km en 7,5 km í kvennaflokkum. Í yngri aldursflokkum verða svipaðar vegalengdir og verið hafa í mótum í vetur. Allir þátttakendur fá páskaegg fyrir þátttökuna. Skráning fer fram á staðnum. Það er Arion banki á Hólmavík sem er styrktaraðili mótsins.
Birkir Þór Stefánsson keppti í gær föstudaginn 4. apríl í hefðbundinni göngu á Skíðamóti Íslands á Akureyri. Birkir náði 4. sæti og gekk 15 km á 52.30 mínútum og var tæplega 7 mínútum á eftir sigurvegara göngunnar Sævari Birgissyni sem keppir fyrir Ólafsfjörð.
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is