Færslur: 2021 Janúar

11.01.2021 22:47

Skíðagöngunámskeið

Skíðafélag Strandamanna heldur fjögur þriggja daga námskeið í skíðagöngu í vetur.  Um er að ræða þrjú tíu tíma námskeið í hefðbundinni skíðagöngu 22.-24. janúar, 5.-7.. febrúar og 5.-7. mars.  Og eitt námskeið í skíðagöngu með frjálsri aðferð 19.-21. febrúar.  Námskeiðin verða haldin á skíðasvæði Skíðafélags Strandamanna í Selárdal við Steingrímsfjörð.

 

Skíðagöngunámskeið hefðbundin aðferð 10 tímar 22.-24. janúar:  Á námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði hefðbundinnar skíðagöngu og er námskeiðið jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.  

 

Dagskrá:

 

föstudagur 22. janúar kl. 18-20 æfing

laugardagur 23. janúar kl. 10.30-12.30 fyrri æfing

                                     kl. 12.30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið í skíðaskálanum í Selárdal

                                     kl. 14-16 seinni æfing

                                     Hægt að fara í sund og/eða heita potta, t.d. á Drangsnesi eða Hólmavík eftir æfingarnar

                                     kl. 19 sameiginlegur kvöldmatur á Restaurant Galdri Hólmavík

sunnudagur 24. janúar kl. 10.30-12.30 æfing og námskeiðslok

 

Skráningar á námskeiðið og fyrirspurnir skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com.  Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá Ragnari Bragasyni í gsm 8933592 eða á facebook.   Námskeiðsgjald fyrir þriggja daga námskeið er 25.000 kr.  Innifalið í námskeiðsgjaldi er hádegismatur á laugardeginum 23. janúar í skíðaskálanum í Selárdal.

 

Skíðagöngunámskeið frjáls aðferð sex tímar 19.-21. febrúar:   Á námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði skíðagöngu með frjálsri aðferð (skautatækni á skíðum).  Dagskrá námskeiðsins er svohljóðandi:

 

föstudagur 19. febrúar kl. 18.30-20 æfing

laugardagur 20. febrúar kl. 12.30-14 fyrri æfing

                                       kl. 14-14.30 pása og spjall í skíðaskálanum í Selárdal

                                       kl.  14.30-16 seinni æfing

Sunnudagur 21. febrúar kl.  10.30-12 æfing og námskeiðslok

 

Skráningar á námskeiðið og fyrirspurnir skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com.  Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá Ragnari Bragasyni í gsm 8933592 eða á facebook.  Skráningarfrestur á námskeiðið með frjálsri aðferð er til og með 12. febrúar.   Námskeiðsgjald fyrir þriggja daga námskeið með frjálsri aðferð er 12.000 kr.  

 

  • 1
Flettingar í dag: 61
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 70267
Samtals gestir: 15634
Tölur uppfærðar: 18.5.2024 11:33:37