10.03.2017 13:02

Strandagangan og bikarmót!

Undirbúningur er á lokametrunum fyrir helgina. En í dag kl. 17:00 hefst bikarmót Skíðasambands Íslands þar sem keppt verður í sprettgöngu. Á morgun mun bikarmót verða haldið samhliða Strandagöngunni. Hefjast leikar kl. 11:30 þar sem yngsta kynslóðin mun skíða 1 km. Kl. 12:00 verður hópstart hjá keppendum í 5, 10 og 20 km göngu. Á sunnudaginn kl. 11:00 verður keppt í frjálsri aðferð á bikarmóti. 

Í dag eru góðar aðstæður á Þröskuldum og litur vel út með veðurspá helgarinnar!

 

 

Flettingar í dag: 677
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 85
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 171152
Samtals gestir: 31075
Tölur uppfærðar: 1.11.2025 19:39:26