Færslur: 2020 Janúar

20.01.2020 14:58

Úrslit úr Skíðafélagsmóti og skíðagöngunámskeið

Úrslitin úr Skíðafélagsmóti með hefðbundinni aðferð eru komin hér á síðuna undir liðnum úrslit.  Fyrsta mót vetrarins 2019-20 var haldið í Selárdal í gær þrátt fyrir hvassa suðvestanátt hér um slóðir en við njótum góðs af því hversu skjólgóður Selárdalur er í sv-átt, aðeins voru dálitlar hviður öðru hverju og skúrir.  Skíðafélag Strandamanna þakkar keppendum fyrir þátttökuna og starfsfólki mótsins fyrir vel unnin störf.  Sérstakar þakkir til Öllu og Kötlu fyrir að halda út í tímatökunni þrátt fyrir nokkuð erfiðar aðstæður.

Fyrsta þriggja daga skíðagöngunámskeiði Skíðafélags Strandamanna lauk í gær í Selárdal, námskeiðið hófst á föstudagskvöld og voru mjög góðar aðstæður og veður bæði á föstudag og laugardag í hægviðri, dálitlu frosti og nýjum snjó, í gær sunnudag hlánaði hins vegar og voru sviptingar í veðri en náðist að ljúka námskeiðinu þrátt fyrir það.  Skíðafélag Strandamannna þakkar þátttakendum á námskeiðinu fyrir komuna sem og þjálfarar og þau sem aðstoðuðu við framkvæmd námskeiðsins á einn eða annan hátt.  Sérstakar þakkir fá Alla og Halldór fyrir ljúffenga kjötsúpu sem var í boði í hádeginu á laugardag í skíðaskálanum í Selárdal fyrir þátttakendur og leiðbeinendur námskeiðsins.  Við minnum á að seinna þriggja daga skíðagöngunámskeið vetrarins verður haldið 21.-23 febrúar í Selárdal, skráning í það námskeið fer vel af stað en skráningar skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com

Eftir að nærri tíu daga hléi á skíðaiðkun vegna veðurs hér á Ströndum lauk síðasta fimmtudag er því búið að vera mikið um að vera í Selárdal, því auk námskeiðshalds og Skíðafélagsmótsins  náðum við að halda skíðaæfingar fyrir börn og unglinga fimmtudag og föstudag auk vinaæfingar á laugardag.

Stefnt er að því að á morgun þriðjudag 21. janúar verði skíðagöngubraut tilbúin í Selárdal um kl. 14 þar sem spár gera ráð fyrir að veður verði orðið gott upp úr hádegi á morgun.

 

06.01.2020 22:51

Skíðagöngunámskeið í janúar og febrúar

Skíðafélag Strandamanna heldur tvö þriggja daga námskeið í skíðagöngu í vetur, 17.-19. janúar og 21.-23. febrúar á skíðasvæðinu í Selárdal.  Á námskeiðunum verður farið yfir grundvallaratriði hefðbundinnar skíðagöngu og er námskeiðið jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.  Hér eru drög að dagskrá námskeiðanna:

 

föstudagur 17. janúar kl. 18-19.30 æfing

laugardagur 18. janúar kl. 10.30-12.30 fyrri æfing

                                          kl. 12.30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið í skíðaskálanum í Selárdal

                                          kl. 14-16 seinni æfing

                                         Hægt að fara í sund og/eða heita potta, t.d. á Drangsnesi eða Hólmavík eftir æfingarnar

                                         kl. 19 sameiginlegur kvöldmatur á Restaurant Galdri Hólmavík

sunnudagur 19. janúar kl. 10.30-12 æfing og námskeiðslok

 

föstudagur 21. febrúar kl. 18-19.30 æfing

laugardagur 22. febrúar kl. 10.30-12.30 fyrri æfing

                                            kl. 12.30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið í skíðaskálanum í Selárdal

                                            kl. 14-16 seinni æfing

                                           Hægt að fara í sund og/eða heita potta, t.d. á Drangsnesi eða Hólmavík eftir æfingarnar

                                          kl. 19 sameiginlegur kvöldmatur á Restaurant Galdri Hólmavík

sunnudagur 23. febrúar kl. 10.30-12 æfing og námskeiðslok

 

Skráningar á námskeiðið og fyrirspurnir skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com.  Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá Ragnari Bragasyni í gsm 8933592 eða á facebook.  Skráningarfrestur á fyrra námskeiðið er til 15. janúar og á hið síðara 19. febrúar.  Námskeiðsgjald fyrir þriggja daga námskeið er 15.000 kr.

03.01.2020 22:21

Mótaskrá

Mótaskrá Skíðafélags Strandamanna fyrir veturinn 2020 er komin á síðuna, í mótaskránni er að finna þau mót sem Skíðafélag Strandamanna heldur og einnig þau mót sem félagar í Skíðafélagi Strandamanna eru líklegir til þátttöku í.  Fyrsta mót vetrarins samkvæmt mótaskránni er Skíðafélagsmót með hefðbundinni aðferð sem haldið verður í Selárdal 18. janúar.

  • 1
Flettingar í dag: 78
Gestir í dag: 40
Flettingar í gær: 100
Gestir í gær: 80
Samtals flettingar: 68892
Samtals gestir: 14990
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 15:14:40