Skíðafélag Strandamanna heldur tvö þriggja daga námskeið í skíðagöngu í vetur, 17.-19. janúar og 21.-23. febrúar á skíðasvæðinu í Selárdal. Á námskeiðunum verður farið yfir grundvallaratriði hefðbundinnar skíðagöngu og er námskeiðið jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna. Hér eru drög að dagskrá námskeiðanna:
föstudagur 17. janúar kl. 18-19.30 æfing
laugardagur 18. janúar kl. 10.30-12.30 fyrri æfing
kl. 12.30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið í skíðaskálanum í Selárdal
kl. 14-16 seinni æfing
Hægt að fara í sund og/eða heita potta, t.d. á Drangsnesi eða Hólmavík eftir æfingarnar
kl. 19 sameiginlegur kvöldmatur á Restaurant Galdri Hólmavík
sunnudagur 19. janúar kl. 10.30-12 æfing og námskeiðslok
föstudagur 21. febrúar kl. 18-19.30 æfing
laugardagur 22. febrúar kl. 10.30-12.30 fyrri æfing
kl. 12.30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið í skíðaskálanum í Selárdal
kl. 14-16 seinni æfing
Hægt að fara í sund og/eða heita potta, t.d. á Drangsnesi eða Hólmavík eftir æfingarnar
kl. 19 sameiginlegur kvöldmatur á Restaurant Galdri Hólmavík
sunnudagur 23. febrúar kl. 10.30-12 æfing og námskeiðslok
Skráningar á námskeiðið og fyrirspurnir skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá Ragnari Bragasyni í gsm 8933592 eða á facebook. Skráningarfrestur á fyrra námskeiðið er til 15. janúar og á hið síðara 19. febrúar. Námskeiðsgjald fyrir þriggja daga námskeið er 15.000 kr.
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is