Nú styttist í Fossavatnsgönguna sem haldin verður á Ísafirði 4. maí og er fólk hvatt til að skrá sig sem fyrst í gönguna. Útlit er fyrir fjölmenna göngu og hefur fjöldi erlendra keppenda skráð sig til leiks. Hægt er að skrá sig í gegnum heimasíðu göngunnar fossavatn.com
Það er ekki úr vegi að rifja upp árangur Strandamanna í göngunni í fyrra þar sem það komst ekki í verk eftir gönguna hjá undirrituðum vegna sauðburðaranna. Níu strandamenn tóku þátt í göngunni og var árangur þeirra eftirfarandi:
Í 7 km göngu karla var Stefán Snær Ragnarsson í 1. sæti á tímanum 23.20 mínútum og var hann 1.44 mínútum á undan næsta keppanda. Friðrik Heiðar Vignisson var 6. á tímanum 27.41 mínútum og Jón Haukur Vignisson var 16. á tímanum 33.46 mínútur.
Í 10 km göngu karla náði Númi Leó Rósmundsson 3. sæti á tímanum 45.04 og var hann aðeins 1.10 mínútum á eftir 1. manni. Branddís Ösp Ragnarsdóttir var einnig þriðja í kvennaflokki í 10 km á tímanum 47.38 og var 3.40 mínútum frá 1. sætinu.
Í 20 km göngu í flokki karla 35-49 ára varð Vignir Örn Pálsson 5. af 15 keppendum á tímanum 1.30.27.
Í 50 km göngu í flokki karla 35-49 ára náði Birkir Þór Stefánsson 6. sæti af 21 keppanda á tímanum 3.08.30 og var hann aðeins rúmum 5 mínútum á eftir sigurvegaranum og aðeins tæpum 2 mín. á eftir fyrsta Íslendingnum í göngunni. Í sama flokki var Ragnar Bragason 10. á tímanum 3.23.09. Í flokki karla 50-64 ára náði Rósmundur Númason 6. sæti af 14 keppendum á tímanum 4.08.57.
Ef veður leyfir verður haldin skiptiganga á morgun laugardaginn 13. apríl í Selárdal kl. 14. Í skiptigöngu er fyrst genginn 1 hringur með hefðbundinni aðferð og síðan skipt um skíði og annar hringur genginn með frjálsri aðferð. Mótið er um leið héraðsmót í skíðagöngu og er haldið sameiginlega af HSS og SFS. Veður hefur verið heldur óstöðugt síðustu daga en útlit er fyrir að rofi til á morgun þannig að hægt verði að halda mótið. Fylgist með fréttum á þessari síðu því ef veðurútlit breytist gæti tímasetningin breyst.
Í gær fórum við í ferð fram á Selárdal og gengum fram að fremra-Hvanneyrargili í frábæru veðri og færi. Ferðin frameftir tók klukkutíma og fimmtíu mínútur en bakaleiðina fórum við á fimmtíu mínútum. Alls voru 15 manns sem fóru í ferðina og var yngsti skíðakappinn aðeins 8 ára gamall. Lagt var spor með sleða og spora og ætti það að vera í lagi í dag ef einhver hyggur á skíðaferð í dag. Leiðin er ca 20 km ef farið er af Brandsholti.
Í dag keppti Birkir Þór Stefánsson í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð á Skíðamóti Íslands sem haldið er á Ísafirði. Birkir átti góða göngu og gekk á tímanum 35.35 mínútum sem tryggði honum 5. sætið af 13 keppendum og var hann 3.45 mínútum á eftir sigurvegaranum Sævari Birgissyni frá Ólafsfirði. Nánari úrslit úr göngunni eru á heimasíðu Skíðafélags Ísafjarðar snjór.is.
Á æfingatíma á morgun sunnudaginn 7. apríl stendur Skíðafélag Strandamanna fyrir skíðagönguferð fram Selárdal. Áætlað er að leggja af stað frá Geirmundarstöðum kl. 13 og tekur ferðin líklega 2-3 tíma. Farið verður á sleða með spora með hópnum og gert spor en einnig er ágætt færi til að skauta. Ágætt er fyrir ferðalanga að hafa með sér nesti og drykk í bakpoka og vera vel búinn þar sem spáð er frosti en á að hlýna um miðjan dag á morgun. Hver og einn verður á sinni eigin ábyrgð í ferðinni og líklega skiptum við okkur í tvo hópa í ferðinni þar sem hópurinn sem færi hægar yfir myndi fara fram að Þjóðbrókargili eða beygjunni á Selárdalnum en þeir sem eru hraðskreiðari færu eitthvað lengra. Öllum er velkomið að slást í hópinn og koma með í skemmtilega ferð og njóta útiveru og hreyfingar í fallegu umhverfi Selárdals.
Í dag var lögð 10 km braut í Selárdal. Brautin er sú sama og gengin var í Arionbankamótinu og Sparisjóðsmótinu þ.e. 5 km. Í dag var bætt við lykkju með snjósleða og spora, sem fylgir Strandagöngubrautinni fram að Gilsstöðum og þaðan fram fyrir Þjóðbrókargil og til baka niður að Geirmundarstöðum.
Þá er ný síða Skíðafélagsins komin í gagnið, en kominn var tími á gömlu síðuna sem hefur verið í notkun frá árinu 2006. Arnar Jónsson Íþrótta- og tómstundafulltrúi Strandabyggðar og framkvæmdastjóri Héraðssambands Strandamanna á heiðurinn að síðunni ásamt nýrri síðu Strandagöngunnar Arnar fær kærar þakkir frá Skíðafélagi Strandamanna fyrir vel unnin störf við báðar síðurnar.
Hér er verið að setja upp nýjan vef fyrir Skíðafélag Strandamanna. Sá gamli á blogcentral kerfinu hefur þjónað okkur vel í mörg ár, en nú eru breyttir tímar og innan skamms verður blogcentral kerfinu lokað. Vonandi kemur þessi nýji vefur til með að reynast okkur vel og vera góð upplýsingaveita til allra þarna úti sem eru áhugasamir um starfsemi Skíðafélagsins!
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is